sunnudagur, október 30, 2005

Rispur

í mannlífinu eru ágætar. Rispur á hljómplötum eru ennfremur ágætar og minna Hal á þá staðreynd að allir hlutir eru forgengilegir, jörðin, heimurinn, guðir og menn, fjármagn og hlutafé, lausafé. Rispurnar eru sérlega ánægjulegar í margs konar samhengi; rispur í mannlegum samskiptum þolast misvel, ripsur á gleri kannski viðkvæmastar finnst mörgum eins og í mannlífinu, sálinni, hvar sem hennar má nú leita. Síðan er unnt að taka rispur í hinu og þessu. Íslendingar eru rispufólk. Halur ráðleggur öllum að hlusta á rispur nóbelsskáldsins íslenska í miðdegissögunni, þar má heyra meistaralestur á meistaraefni, um 40 ára gamall lestur. Paradísarheimt var það heillin. Tilvitnanir þaðan af heimasíðu skáldsins eru eftirfarandi:

„... þegar heimurinn er hættur að vera dásemdafullur í augum barnanna okkar þá er nú lítið orðið eftir ..." (2. kafli)
„Að vakna við að maður hefur mist alt og veit að maður á ekki leingur neitt, er það þá að vera manneskja?" (27. kafli)
„Ég hef fundið sannleikann og það land þar sem hann býr, áréttaði vegghleðslumaðurinn. Það er að vísu allmikils vert. En nú skiftir mestu máli að reisa við aftur þennan vallargarð." (30. kafli)

Halur bætir engu við þetta og telur sjaldan eða aldrei tilefni í slíkar færslur, nema kannski hjá HKLLA.

2 Comments:

At 12:00 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Það virðist vera sem læknar séu töluvert að taka rispur núna. Ert þú nokkuð í (fyrrverandi) ritstjórn Læknablaðsins. Menn virðast skiptast í tvo hópa og er annar mjög á móti Kára Stefánssyni en hinn fylgjandi/hlutlaus Kára.

Það er spurning hvort maður gefi kost á sér í ritstjórnina enda áður staðið að blaðaútgáfu.

Er ekki annars allt rólegt á ,,vesturvígsstöðvunum´´?
Bið að heilsa öllum.

Kveðja

Arnaldur

 
At 11:18 f.h., Blogger ærir said...

Af ofangreindu tilefni og 27.kafla sem vitnað er til enn ofar:

Allt til andskotans farið
illt er að vera til.
Allt vit úr mér barið
ekkert ég veit eða skil.
Í sannleika get ég svarið
síst er það sem ég vil.

 

Skrifa ummæli

<< Home