þriðjudagur, desember 28, 2004

Maður ársins

er á næsta leiti. Þetta er einn þessara standarda sem bylur á manni ef útvarpið er opnað eða réttara sagt hinar stöðvarnar (Rás eitt eina stöðin). Hvernig stendur á þessu? Nær væri að spyrja: Hver er ekki maður ársins? Allir hljóta á sinn hátt að vera menn ársins. Ég hygg og vona að allir geti nefnt e-n mann ársins sér nærri. Hver er ekki maður ársins?

2 Comments:

At 11:45 f.h., Blogger ærir said...

Maður ársins er að sjálfsögðu Veiðimaðurinn, hinn eini og sanni. Sendi þér í því tilefni hið fornkveðna, en svo telst allt sem ort er fyrir miðja síðustu öld. Hefði viljað senda þér eitthvað frumort en það allt leirburður eins annað sem frá mér kemur og alþjóð veit. Jafnvel þó reynt sé koma því í dulbúning, þá batnar ekki skálskapurinn.
Vona að þú og fjölskylda þín eigi friðsæl áramót og takið árinu 2005 af æðruleysi.

þinn langfrændi, Reynir.

VEIÐIMANNAVÍSUR

Það vorar fyrr en varir
Og vonir hefja flug
Er fannir fer að leysa,
menn fyllast veiðihug.

Veiðimenn eru enn
Ekki af baki dottnir,
og fyrr en varir fram á heiðar þotnir.



Þá verður veruleiki
að vaða elg og streng,
og stoltir menn með stengur
þá standa vart í keng.

Veiðimenn eru enn
alltaf borubrattir,
en standa stundum nokkuð fattir.


En kalt er fram til fjalla
og fremur rysjótt tíð,
þó reynast raunabætur,
ef ráðskonan er blíð.

Veiðimenn eiga enn
eld, sem naumast dvínar,
Og einnig fyrir eiginkonur sínar.


Og oft er um það talað
að aftni liðins dags,
hve kænlega var kastað,
þó kræktist ekki í lax.

Veiðimenn eru enn
ei til sagna tregir,
og eins og gengur: undurfurðulegir.


En eins og sögur sanna
og sérhver maður veit,
sá lax var aldrei léttur,
sem línu og girni sleit.

Veiðimenn víða enn
væna drætti hreppa,
þótt stundum vilji happ úr hendi sleppa.


Í vitund veiðimanna
er vertíð ár og síð,
því stríðið við hinn Stóra,
það stendur alla tíð.

Veiðimenn eru enn
elju og kappi gæddir.
Er furða þó að fiskar verði hræddir?

Höf: Guðmundur Sigurðsson.
Úr bókinni Dýrt spaug. Heimslystavísur og hermiljóð
Helgafell 1962.

 
At 3:02 e.h., Blogger Halur Húfubólguson said...

Það er ætíð þakkarvert að fá slíkar vísur sendar og ylja þær manni um hjartarætur hvar sem þær nú liggja í anatómíu hugans eða líkama. Sjálfur hef ég burðast með leirinn í vösunum og í gömlum bakpoka, en vonast nú til að frændi herði skáldajarlinn og sendi nokkrar bögur norður á heimaslóðir.

 

Skrifa ummæli

<< Home