miðvikudagur, júní 14, 2006

Hvassviðri úr görn

er ekki alltaf vinsælt. Í gær var talsverður vindur úr görn leystur í Vinaminni og það jafnvel á ólíklegustu stöðum af "vindefnaminni" persónum. Kannski hefur það bara verið æfing fyrir daginn sem er að byrja, en von er á tveimur veiðimönnum norður, sem báðir geta losað talsvert ef því er að skipta. Hvassviðrið úti í morgunsárið var töluvert, en vindurinn er jú versti óvinur reiðskjótans eins og áður hefir áreiðanlega fram komið á þessari vindlausu síðu. Það eru orðin nokkuð mörg árin síðan Halur stundaði vindlosandi æfingar í Haga, en það þótti nú talsverður heiður í þá daga. Halur kvað:

Víst við máttum þenja þind
þegar leysa skyldum vind,
en öfugt við
hinn evangelíska sið,
það enginn taldi synd.

4 Comments:

At 1:25 e.h., Blogger ærir said...

Láttu ei af heiðnum hátt
hertu kvið nú losa mátt
vindsins rödd
frá maga södd
hlæðu svo með dausi dátt

með kveðju frá
röddum vindsins

 
At 2:37 e.h., Blogger ærir said...

engar veiðisögur enn, var lítið ort en meira veitt?

 
At 1:14 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Er bloggid dautt ?

Kvedja fra Spáni

 
At 7:53 e.h., Blogger Guðný Pálína said...

Halur var að segja það um daginn að hann ætlaði að hætta að blogga - vonandi er hann bara í smá hvíld og kemur endurnærður til baka ;-)

 

Skrifa ummæli

<< Home